Textabox

Velkomin á bloggið mitt gott fólk :)

25.04.2008 00:35:28 / grimsey

Getur þetta verið ???


Lincoln og Kennedy eiga ýmislegt sameiginlegt!

Söguleg ráðgáta!

merki.jpg

Fáðu sögukennarann þinn til að útskýra þetta—– ef hann getur.

pres.jpgpres02.jpg

Abraham Lincoln var kosinn á þing árið 1846.
John F. Kennedy var kosinn á þing árið 1946.

Abraham Lincoln var kosinn forseti Bandaríkanna 1860.
John F. Kennedy var kosinn forseti Bandaríkanna 1960.

Báðir töldu mikilvægt að tryggja borgaraleg réttindi handa öllum.

Báðar eiginkonur þeirra misstu fóstur á meðan þær bjuggu í Hvíta húsinu.

Báðir voru þeir skotnir til bana á föstudegi.

Báðir forsetarnir voru skotnir í höfuðið.

Og núna verður þetta virkilega undarlegt!

Einkaritari Lincolns bar eftirnafnið Kennedy.
Einkaritari Kennedys bar eftirnafnið Lincoln.

Báðir voru þeir skotnir af Suðurríkjamanni.

Suðuríkjamenn tóku við embættinu af þeim báðum og hétu þeir báðir Johnson að eftirnafni.

Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur 1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.

pres03.jpgpres04.jpg

John Wilkes Booth, sem skaut Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem skaut Kennedy, var fæddur 1939

.

pres05.jpgpres07.jpg

 

Báðir morðingjarnir voru þekktir undir þremur nöfnum.
Bæði nöfn samanstanda af 15 stöfum.

Og nú skaltu halda þér fast.

Lincoln var skotinn í leikhúsi sem hét ‘Ford.’
Kennedy var skotinn í bíl sem heitir ‘ Lincoln ‘ framleiddur af ‘Ford.’

Lincoln var skotinn í leikhúsi og morðingi hans hljóp og faldi sig í vöruhúsi.
Kennedy fékk skot í sig sem kom frá vöruhúsi og morðingi hans hljóp og faldi sig í leikhúsi.


 

Bæði Booth og Oswald voru skotnir til bana áður en þeir komu fyrir dómstóla.

Svo lokahnykkurinn…

Viku áður en Lincoln var skotinn til bana var hann í bænum Monroe í Maryland,

viku áður en Kennedy var skotinn var hann með Marilyn Monroe.

pres06.jpg


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 13:48:49 / grimsey

Handa okkur stelpur mínar :)

Vissir þú.....

.... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?

.... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?

.... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?

....að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?

.... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?

.... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?

.... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?

.... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna

.... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?

.... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?


Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.

-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.
 

-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.

-Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar. Við erum allar æði...........og ekki gleyma því!
 



» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 21:00:54 / grimsey

Lífið !!!


Ótrúlegir hlutir gerast og einn þeira nú rétt í þessu. Ég Helga Fríður fékk yfir mig gamalkunna tilfinnigu eins og að þyrfti að blogga
J Svo ég læt vaða áður en mér snýst hugur ;)

    En jæja margt margt margt hefur átt sér stað síðan ég hef tjáð mig eitthvað að ráði síðast. Til að gera rosalega langa sögu stutta þá hefur lífið bara eiginlega suckað big time síðan í september á síðasta ári. Hver erfiðleikinn og áfallaði dunið yfir af öður svo nóg hefur þótt um. Þetta hefur ekki allt snúist bara að mér persónulega heldur einnig að fólkinu sem mér þykir hvað mest vænt um í þessu lífi og því má segja að reiði og særindi hafi einkennt þessa mánuðu allt of mikið L En einhvers staðar stendur að eitthvað gott fylgi öllu og vil ég því bara vona að reynslan af þessu öllu komi mér til góða, ég hef uppgvötað ótrúlegustu hluti bæði um mig og aðra í kringum mig svo nú er ég reynslunni ríkari hvað það varðar. En ég held ég tjái mig bara ekkert meira um þetta hér því það er einfaldlega ekki við hæfi því þá myndi ég segja svo margt ljótt.... :P

    En málið er nú samt að ég hef fulla trú á því að með hækkandi sól komi betri tíð. Ekki þarf að líta lengra en bara viku fram í tímann, þá verð ég nefnilega stödd á Tenerife með minni yndislegu fjölskyldu  + öðrum vinafólki og er ég viss um að þær 2 vikur sem við munum vera þar verða geggjaðar og yndisleg afslöppun og orkusöfnun eftir þessa ótíð. Ég er þegar farin að taka til pilsin, kjólana og bolina með bros á vör J plús allar myndirnar sem ég er búin að búa til í höfðinu á mér um sældar lífið á fína hótelinu, ströndinni og stöðunum í kring J

    En nú verð ég líkaað halda áfram að vera dugleg að læra svo ég geti notið mín þarna án bóka, svo best að hætta þessu hér í bili.

    P.s  4 ár í dag frá því að hann Mummi var tekin frá okkur í annan heim.... Guð geymi þig vinur :*

    Vona ég að lífið sé að fara vel með ykkur og þið eigið eftir að hafa það rosa gott þar til ég læt heyra í mér næst J

Out

Helgan


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 19:47:42 / grimsey

Jólin eru að koma :)

Gleðileg jól fallega fólk nær og fjær...

Njótið jólanna hægri vinstri............snú

Og megi nýtt ár taka hrika vel á móti ykkur and make you happy .....AAAALLLLLL THE WAY :)

Ykkar

Jólastelpa :haha:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 10:50:35 / grimsey

14 merkur og 51 og 1/2 cm drengur :)

Jæja þá er hann komin í heiminn litli strákurinn og við öll að rifna úr monti eins og gengur og gerist :D

Endilega kíkið á myndirnar hér að neðan undir "litli frændi"

Knús..... :*

Helga Fríður :haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 14:55:47 / grimsey

VERSLÓ 2007 ;)

Andlaus sem aldrei fyrr verða upphafs orð þessa frábæra bloggs :lol:

 

Nú jæja mér er ekki til setunnar boðið með að blogga þar sem lýgilega margir heimsækja þessa síðu þó ekkert sé að gerast... hugsa ég þó að fólk sé að vænta þjóðhátíðarupplýsinga :o

Jú grunaði ekki Gvend... eins og síðasta jólakort greindi frá (þið sem fenguð slíkt;)) lofaði ég engu um að ég myndi ekki heiðra eyjapeyja og meyjar með nærveru minni á þjóðhátíð í 7. sinn :D Góður hópur var mættur í eyjar á fimmtudagsnótt og má þar nefna helsta Lallann, Raggann, þjóðhátíðardrottninguna Ólöfu og hennar spúsa Elementinn. Þessi hópur stóð af sér vinda og vætu jahhh þó svo að tjaldið okkar hafi ekki gert það! Já og einhverra hluta vegna var tjald og skómissir gríðarlegur þessa helgi og er Lalli klárlega viðriðin það ALLT sama hvernig á það er litið 8|

En við Kárinn lögðum land undir fót á laugardagsmorgun þegar blíðan var skollin á, útréttuðum lítilega í bænum, brunuðum til Þorlákshafnar, komum dótinu okkar inn í gám og opnuðum okkur einn lightara á bryggjunn í blíðunni ...:) Sjóferðin gekk eins og í sögu þó okkur hafi þótt aðkoman að eyjum eitthvað undarleg ! Móttökunefndina skipaði Lalli, Raggi og Fúsi... hahah sjúskuð var hún en sæt :P Gamla tjaldinu var hennt upp í brekku þar sem það hafði víst aldrei náð fullu risi og nýju og betra komið fyrir í staðin, einnig sá kvenmaðurinn í hópnum til þess að vindsængin sem var búin að liggja samanvöðluð inn í horna væri pumpuð upp og komið fyrir inn í tjaldinu ásamt dóti og svefnpokum ! (já einhvern tíman minntist ég á það að það væri bara betra að fara með strákum því þá væri ekki þetta “kellingadrama” í gangi ;) en .... ég held að besta blandana sé bara svipað mikið af hvoru kyni því kræst þessir strákar, það vantar allt sem heitir regla á þetta lið.... ;))

Svo við stiklum á stóru þá er skemmst frá því að segja að við opnuðum okkur bjór að tjöldun lokinni, farið á prófastinn í pizzu og svo heim í heiðardalinn þar sem beið okkar party... við Ólöf skelltum upp partýtjaldi með hjálp góðra gæja og þar var gott að vera... jahh Ólöf var samt upptekin í að kyssa kúlurnar á kallinum mest allan tímann...hahah :D Eitthvað var nú sötrað því eftir að ég klæddi mig í útibuxurnar og fyllti bakbokann af víni þá man ég kvöldið í svoan flashlight myndum.... hittingur hér, símtal þar, dans hér og pisserí þar... úfftý úff... ölvunin náði ofurstigi en eitt man ég þó fullkomnlega... gleðin var gríðarleg :D

Vaknaði hrikalga falleg á sunnudagsmorguninn og var þá aðalega í sólbaði þar til ég haskaði mér í sturtu rétt fyrir 5. Fékk þá strákana mína með mér niðrá 67 að borða sem er ekkert í frásögufærandi.. NEMA HVAÐ ! Við pöntuðum okkur öll sinhvora 9” pizzuna og bjór. Hmmm eftir klukkutíma ákvað ég nú að heyra í dömunni með þetta og þá var mér sagt að okkar pöntun hefði týnst... vvveeeeiiii við vorum GLORSOLTIN! Jahh og eftir eins og góðan hálftíma í viðbót mætti maturinn sem var þá allt svo nefnilega 4 16” pizzur og 2 franskaskammtar og þetta bara passaði ALLS EKKI á borðið hjá okkur. Við sátum þarna fjögur eins og fífl með mat fyrir 20 manns og fólk hikaði ekki við að stoppa og gera athugasemdir og mynda okkur og fleira :).... Skál fyrir 67 :) Á meðan á þessu stóð lá Ginna frænka á línunni og lá mikið niðri fyrir að við yrðum að mæta við sviðið og það sem allra fyrst...Og já þegar þangað var svo loks komið hvað haldiði þá... heyrðu jú haldiði ekki að Alli bró, Gagga mágkona, Garðar, Óli Björn, Guðrún og Lórenz hafi verið mætt í dalinn :haha: Halló þau tóku leiguvél frá Grímsey og þvert yfir landið til að mæta og syngja með Árna Jonsen :P Þetta var því eiginlega að ættarmóti þarna í brekkunni því ég held að við höfum verið um 20 saman komin af Sveinstaðarleggnum :haha:Þetta kvöld hélt ég fullkomnlega haus og var mömmu klárlega til sóma..hahahha ;)

Þjóðhátíð var með eindæmum hrikalega vel heppnuð og nú (eins og svo sem vanalega) ætla allir að mæta að ári.... alla vega Stella..hehe ;)

En auðvita gerðist nú margt fleira og ekki allt prenthæft en margir frasar flugu fram og til baka og skemmtu okkur og má þá nefna nokkra hér.... ef þið skiljið eitthvað í þeim;)

 

“Þú og ég við erum svo yfirmáta ástfanGNIR”

“Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn”

“Kúkur”

“þeim verður að svíða sem undir míga”

“Var mig að dreyma eða er geðveikt mikið af Powerate þarna frami”

“Woodo stic my ass”

Já já og markt fleira sem fauk þarna um dalinn og þegar maður þekkir til er þetta hrikalega fyndið:P Svo endilega komiði bara með næst 8)

Nenni ekki meir í bili en hellings fram undan sem þið fáið kannski að fylgjast með ef ég verð duglegi kallinn :!:

Verið heiðarlegt og gott fólk öll sömul annars er mér að mæta..........

Helgan Fríðurin !


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 20:41:09 / grimsey

"Sloppurinn" ;)

Daginn eða kvöldið allir nær og fjær !


Yes....... frekar en ekkert ligg ég hér heima upp í rúmi bara alls ekki eins og ég á
að mér að vera !!! Kannski ekkert veik en alla vega "sloppur" eins og við segjum stunudum
vinkvennurnar ;) Jamms eftir að hafa verið veikindalaus svo mánuðum ef ekki árum skiptir þá
fannst mér þessi tími best til fallin........ !!! :( En hér skal ég liggja í kvöld og í nótt
og þá á þetta að vera búið, tek bara heitt kakó og strepsil á þetta og þá verður þetta batnað:)

Um síðustu helgi fór ég loksins í langþráð roadtrip ferðalag. Jamms við Dögg vinkona skelltum
okkur upp í bíl í hádeginu á föstudaginn og brunuðum okkur í átt að sól og sælu... sem við
jú fundum eftir að hafa barist í stormi og úrhelli yfir hellisheiðina :) Það fyrsta sem ég
upplifði þarna var ÁST VIÐ FYRSTU SÝN....... jamms Vík í Mýrdal á hjarta mitt þessa dagana
féll kylli flöt enda ekkert smá fallegur staður og veðrið var líka ekki til að spilla fyrir.
Enduðum nú samt á Kirkjubæjarklaustri sem er frábær staður líka, þarna tjölduðum við litla
tjaldinu mínu innan um allt fjölskyldufólkið á hjólhýsunum sínum...hahah :) Ég kom að sjálfsögðu með allar gærjur eins og sönnum dreifbýlisdruslum sæmir og þegar búið var að tjalda dreif ég mig í ullapeysu, húfu, griflur og klút um hálsinn já og ekki má gleyma ÚTIBUXUNUM

.... hmmmferðafélaginn gerði mikið grín af mér að vera í einum slíkum og já jafnframt að kalla þær
þessu nafni......... halllllló pollabuxur eru fyrir krakka :D En jæja jæja engu að síður
fór ég út í blíðuna í þessari múnderingu með prímusinn minn og bjó þar til "Toddý" handa
okkur sem var nú ekki slæmt svona eftir langa keyrslu :) Áttum við merkilegar samræður fram
á nótt og hlógum mikið. Daginn eftir var svo pakkað saman, farið "heim":) á Vík og farið í
sund, sólbað og borðað.... hituðum okkur svo upp í nýjan gír á leiðinni til baka og kíktum
á NÖSU um kvöldið þar sem Palli og Plugg'd léku fyrir dansi... og þar var dansað fram í hið
óendanlega.

En gott ég fari að skella inn einhverjum myndum.... fyrir ykkur sem eruð enn ekki orðnir
fullkomnir nördar sem lifa í myspace heiminum þá megið þið vita að ég er mun duglegri að update-a myndirnar mínar þar
einfaldlega af því að það er ekkert mál :D

En jæja þá er ég best að ég snúi mér á hina hliðina, stingi upp í mig strepsil og haldi áfram
í Grey´s Anatomy maraþoninu mínu :)

Over and..................................out
           Helga Fríður


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 07:28:42 / grimsey

Úrslit !

Jæja svona líður ykkur nú gagnkvæmt þessu sumri :)

En hvað á að gera um VERSLÓ ?????

Endilega takið þátt elskurnar ;)

 

Yfir og út

Helgan


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 16:28:17 / grimsey

Og þið alltaf hér :)

Sælt veri fólkið :D

Kann nú ekki við annað en að henda inn smá tíðindum þar sem mér til mikilla undrunar hafa verið á milli 60-90 heimsóknir á dag þó stelpan sé ekkert að skrifa.... Gott með ykkur 8)

En alla vega þá er lífið gott bara og ég á fullu að gera veit ekki alveg hvað, jú vinna aðalegast og svo slatta dugleg við að slæpast. Þar sem ég er að vinna í vaktavinnu er það alveg nýtt fyrir mér að vera í fríi á daginn og var það bara mun erfiðara en ég hélt að finna sér eitthvað að gera..... en vitið menn þetta kemur allt saman :haha:

En hápunktur sumarsins hingað til er SJÓSTÖNG Í GRÍMSEY 2007 ! Þessi hátíð klikkar seint og er ég ekki frá því að þessi hafi verið ein sú besta hingað til bara..... fullt af fólki og líf og fjör. Hendi inn myndum mjög fljótlega bíst ég við :P

Það sem veltist í hausnum á mér hvað mest þessa dagana er ÞJÓÐHÁTÍ 2007.... eða eiginlega heldur ef ég fer ekki.... HVAÐ Í ÓSKÖPUNUM GERI ÉG ÞÁ ??? En þetta kemur nú allt í ljós hef ég trú á :$:D

Jæja þá er það back to work........ vona ég að þið séuð að eiga yndislegt sumar öll sem eitt og séuð dugleg úti að leika ykkur :lol:

Kellan kveður í óákveðin tíma.......................!!

P.s og svo er komin ný skoðó !! 

                       HELGA FRÍÐUR


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 16:16:16 / grimsey

SUMARFRÍ ;)

JEBBS ÉG HELD ÉG TAKI MÉR SMÁ SUMARFRÍ Á ÞESSU HÉRNA !

TÍMAMÖRK ÓÁKVEÐIN SVO ALDREI AÐ VITA HVENÆR MAÐUR LÆTUR SJÁ SIG AFTUR :)

EIGIÐ YNDISLEGA TÍMA ENGLARNIR MÍNIR :)

YKKAR

HELGA FRÍÐUR


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 15:37:52 / grimsey

FARIN !!!

Jebbs enn einu sinni legg ég land undir fót til þess að heimsækja heimskautsbauginn minn.

Ætla ég mér að dvelja þar í vikutíma og hafa það gott og fara í kríueggjaleit... alltaf gaman að berjast aðeins við kríurnar ;)

En jæja þá tek ég rokuna og bið ykkur vel að lifa !

Over and out !

Fríður ferðafuða :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 01:26:50 / grimsey

Staðan í dag/nótt er þessi...........

Halló konur og mennir :)

  • Gott, gott, gott að lifa þessa dagana.... geri það sem ég vil :)

 

  • Evan mín og litla fallega prinsessan hennar búnar að vera hjá mér í 2 daga og var það bara yndislegt

 

  • Hlakka mikið til á laugardagskvöldið því þá verður skellt sér á skrall til að fagna prófalokum :)
  •  

    • Skellit inn FULLT af nýjum og ferskum myndum hér á link neðarlega á síðunni undir "Apríl-mai 2007"

     

    • Annars bara er ég að hugsa um að fara að drífa mig í heim drauma og dásemdar því klukkan er orðin svo margt :)

    Kveð að sinni

    Fríða frjálsa :haha:

     


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:48:36 / grimsey

Búin búin búin búin búin búin !

Já veit ekki alveg hvernig ég á að vera.... bara frjáls eins og fuglinn og fínt fínt :D

 En ég ætla ekki að blogga alveg strax, er að púsla lífinu aftur saman eftir  að hafa verið ON HOLD í um 4 vikur...

Langaði bara að spyrja ykkur að einu.........................

 

VILL EINHVER KOMA MEÐ MÉR Í BOOT CAMP ?

LANGAR HRIKA EN ÞORI EKKI ALVEG EIN :^)

Svo plís einhver koma með mér :D

 koma svo píps.....

 Bæjó :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 15:45:39 / grimsey

SÝNUM NÁMSMÖNNUM TILLITSSEMI !!!!

Hvað hefur orðið um þessa frábæru setningu Landsbankans nú ?????

Próf á mánudegi eftir Júróvision !!!!!! 

Fjarri því að mér líki það !

 En ég er hress og ég er kát því Jón er komin heim ! eða bla bla orðin nett sýrð á prófalestri og bíð óþreygjufull eftir mánudeginum 14 mai eftir klukkan 12.

Bið Guð að blessa þá sem geta ekki farið og hrisst sig yfir júróvision sökum prófalesturs... þið hin........................HAVE FUN ;)

 Út og suður

Fríða fönner :D


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 20:07:02 / grimsey

Skilafrestur, læruhópur, bústaður, pottur og lærelsi

Hmmmmmmmmm þá er blessuð einbeitningin horfin fyrir fullt og allt í dag myndi ég halda. Við skvízurnar erum búnar að vera hrikalega duglegar mán, þri og mið og erum búnar að koma alveg óhemju miklu í verk, skila af okkur tveimur ritgerðum, ljúka næstum því við þá þriðju og setja saman einhverja greingagerð. Þessi verkefni hafa verið gífurlega mis skemmtileg og alltaf er skemmtilegasti parturinn af þessu að sjá þetta renna ofan í skilakassann :haha:! Þið hefðuð bara átt að sjá okkur á mánudaginn, þá var einmmitt skilafrestur á tveimur ritgerðum klukkan 4, eitthvað vorum við nú örlítið seinar á því og vorum farnar að hlaupa eins og vitlausar værum um alla hlöðuna til að prenta og gera og græja... klukkan var svo nákvæmlega 3 mínótur í 4 þegar við henntum þeim niður í kassann sveittar og sælar:DÞá var farið upp á hlöðu og tekið til við næstu 2.... já sjómannslíf, sjómannslíf draumir hins unga manns..... hver ætlar að semja svona lag um háskólaífið? :P

                Einhvers staðar í öllu þessu stendur svo að námið geri manni gott !!!! Hmmm ég var búin að gleyma því hvernig ég var í síðustu prófatörn þar til á mánudaginn... það er eins og ég detti  bara úr sambandi við umheiminn og ég hugsi ekki alveg skýrt hvað ég segi nema að það tengist lærdómi... ég átti ófáar bullu setningarnar á mánudaginn og er enn að skutla inn einni og einni 8)En þó þetta sé mikil vinna þá er þetta líka gaman og ég tala nú ekki um þegar maður er í góðum félagsskap, því þær eru jú bara yndislegar þessar stelpur mínar sem ég er í læruhóp með þær Ólöf, Helga Lind, Eva Rós og Sigga. Veit ekki alveg hvar ég væri ef þeirra nyti ekki við.

                En jæja jæja áður en ég dett í dramatíkina ætla ég að segja ykkur svolítið skemmtilegt :haha:Jú við stöllur, ég, Ólöf og Helga Lind erum sko að fara í bústað á föstudaginn............EKKI Á MORGUN HELDUR HINN. Þessi ferð er lærdómsferð og það sem verður með í för eru skólabækur, tölvur, glósur, pennaveski og eitthvða álíka skemmtilegt. Þarna munum við dveljast frá föstudegi til mánudags við lærdóm, göngur, lærdóm, pottaferðir, lærdóm, grillelsi, lærdóm, sofelsi, lærdóm ....bla bla bla... þið skiljið mig. Alla vega þá verður þetta klárlega ÆÐI, ætlum að koma við í Bónus og versla fullt, fullt af góðum mat, nammi, ávöxtum og grænmeti  og hver veit nema að ein rauðvín fái að fljóta með til að ná úr sér mestu streitunni í pottinum eitthvert kvöldið ;)

En núna ætla ég að reyna að detta aðeins í greinargerðardótið áður en ég fer að skúra á Korner með Huldunni minni.Kveð að sinni

Helga Fríður Garðarsdóttir sem skrifar frá Hlöðunni.

P.s ný skoðó ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 88885
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan